15.1.06
Tilkynning

Við erum enn að sjá að þessi síða er að fá heimsóknir og viljum benda fólki á að nýja síðan okkar er opnuð. Allar helstu greinar hafa verið færðar héðan og settar yfir á bogo síðuna okkar.

FÆRA MIG YFIR

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

..

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

 


Posted at 21:21 by Örvar
Fjöldi skoðana (1)  




9.1.06
Síðunni hefur verið lokað

Ágætu lesendur, vinir, ættingar og fleiri.

Þið sem ekki vitið þá höfum ég og Berglind fært bloggið okkar yfir á síðuna http://www.123.is/bogo (bogo = Berglind og Orvar) :)

Endilega breytið tenglum ykkar ef það eru og eins endilega skrifið í gestabókina okkar og látið vita hver ykkar síða er svo við getum bætt henni í tenglasafn okkar.

Með bestu kveðjum

Örvar og Berglind


Posted at 01:38 by Örvar
Segðu þína skoðun  




15.12.05
Ársafmæli, King Kong og Victor

Alveg kominn tími á að blogga. Það er skemmst að segja frá því að nú er maður næstum því búinn að vera heima í þann tíma sem maður var í burtu og það er gott að vera kominn heim til elskunnar. Satt að segja gerði þessi fjarvera okkur mjög gott fyrir og erum við nánari nú en nokkru sinni fyrr. "Fjarlægðin gerir fjöllin blá" eins og einhver sagði eitt sinn...

Að frétta er það nú helst að maður er búinn að vera að vinna á fullu og koma sér almennilega í gang, lítið að gera í bransanum um jólin enda fáir að hugsa um heilsuna, ætli flestir séu ekki komnir "í kjólin fyrir jólin".

Það var gaman að komast aftur á Victor með B og co á föstudögum og gæða sér á ofurhamborgara. Reyndar það sem eyðilagði kvöldið var einhver bévítans trúbador sem gólaði svo mikið að við gátum ekki einu sinni talað saman og hélt áfram að gaula 12 mínútur fram í Idol úrslitin, ég kvartaði pent við framkvæmdastjóra Victor og hann féllst á að hætta með trúbadorana. Vel gert Victor.

Í gærkvöldi þá fögnuðu ég og Berglind okkar ársafmæli með því að fara út að borða á Victor og fengum okkur ofurhamborgara þar sem við munum ekki hafa tækifæri á því að gæða okkur á slíkum á morgun þar sem við erum að fara á Nínu og Geira á Broadway sem er hluti af árshátíð EAS. Við héldum svo í Sambíóin Álfabakka og sáum King Kong í lúxussalnum, reyndar var þetta svo ekki mikið sem neitt lúxus þar sem myndin var úr fókus og það var aðeins hægt að fá litla popppoka og litlar kók þannig að maður þurfti að fara margar ferðir hvað eftir annað til þess að næra sig. Merkilegt hvernig íslendingar skilgreina lúxus: "Þægilegra en venjuleg sæti, ókeypis en ekki fá þér of mikið" - Meiru gyðingarnir. Ég kvartaði pent við framkvæmdastjóra Sambíó og á eftir að fá svar frá þeim.

Ég hlakka til helgarinnar með Berglindi, árshátíð á föstudaginn og síðan munum við líklegast gera einhver jólainnkaup um helgina.

Ég var sendur heim í dag veikur, búinn að vera veikur síðan á þriðjudagskvöld og rétt treysti mér út í gærkvöldi, síðan þegar ég fór í vinnuna í morgun byrjaði mig að svima og svitna óheyrilega við að lyfta kössum þannig að mér var snyrtilega bent á að hvíla mig í þeirri von að ég verði frískur á morgun fyrir árshátíðina.

Takk fyrir lesturinn.

 


Posted at 13:43 by Örvar
Fjöldi skoðana (9)  




13.12.05
Við erum eins árs á morgun!!

Ja hérna....Mikið rosalega líður nú tíminn hratt. Á morgun er ár liðið síðan við Ö fórum á fyrsta deit... Við þurftum ekki meira en þetta eina deit, en við höfum verið límd saman ever since. Ætlum að gera okkur dagamun í tilefni dagsins og fara í bíó he he..... í lúxussal sko, annars væri það ekki eins spes Big Smile Finnst þetta ár hafa liðið svo hratt, svo mikið að gerast einhvern vegin, aldrei nein lognmolla og tóm hamingja. Alveg mega fínt ár bara, vona að árið 2006  verði jafnt æðislegt Wink.

Ég hef alveg meira en nóg að gera þessa daganaShocked. Með nefið á kafi í bókum og greinum að reyna að koma þessu hreindýraverkefni frá mér á skiljanlegan hátt. Veit ekki alveg hvernig mér gengur samt Surprise... jú ég skrifa og skrifa, en svo stroka ég mest út aftur bara. Það er sko endalaust hægt að breyta og bæta. Eins gott að maður er ekki að pikka þetta inn á ritvél eins og menn máttu gjöra svo vel að gera fyrir ekki svo mörgum árum síðan. Held það væri algjör geðveiki að standa í því skoHurmph. En eitt er víst að eftir þetta þá veit ég meira um hreindýrakúk og innihald hans en nokkur annar hér á þessu landi alla vega og þó víðar væri leitað Shades já öfundið mig bara!!

Læt þetta duga í bili, best að grúfa sig yfir blessaðar bækurnar og hætta þessari vitleysu Tongue 

Ta ta

 





9.12.05
X360 vs PC

Áhugaverð lesning sem ég rakst á varðandi samanburð á Xbox 360 og PC vélum í dag. Gott að maður keypti ekki köttinn í sekknum.

Posted at 13:32 by Örvar
Segðu þína skoðun  




6.12.05
Kominn heim loksins


Þá er ég kominn heim loksins til Íslands og má með sönnum orðum segja að þessi ferð hafi verið ótrúleg lífsreynsla því ekki aðeins fékk maður að upplifa New York heldur fékk ég "The Real NYC experience" þar sem ég var ekki á túrista leiðangri heldur búandi með innfæddum ef svo má með orðum komast. Að búa þarna í Harlem er varla hægt að lýsa, rottur fyrir utan gluggann hjá manni og maður rekur upp stór augu sjái maður hvítann mann í mergð blökkumanna á förnum vegi.

Ég er búinn að setja inn myndir á myndasíðuna frá Madam Toussad's vaxmyndasafninu auk nokkurra fleirri og mæli með því að þið kíkið endilega þangað. Ennfremur væri gaman að fá comments um hvort ykkur finnst þessar vaxmyndir líta vel út eður ei osfrv... Nú svo stendur til að færa þessa bloggsíðu okkar Berglindar yfir á 123 kerfið og þá verða settar inn allar myndir frá ferðinni í heild sinni...
Fara beint á myndasíðu








Posted at 12:10 by Örvar
Fjöldi skoðana (5)  




5.12.05
Wheeee!!!

Jæja þá er haunkið loksins komið heim frá útlöndunum!! :)
Hann kom heim í gærmorgun og ég náði í hann út á völl. Ég reif mig upp um hálf sex um morguninn, eftir klukkutíma svefn (var svo spennt að ég gat ekki sofnað), fór út í frostið og keyrði út á völl. Beið þar óþolinmóð í um hálftíma, þar til hann loksins birtist gegnum dyrnar, ægilega þreytulegur og tuskulegur, enda með einhverja flensupest. Við keyrðum heim og hann fór strax að tína upp úr töskunum, gat ekki beðið að sýna mér allt he he.

Hann kom færandi hendi, keypti slatta af fötum, t.d nærföt úr Victorias secret, boli og æfingaföt, puma skó, stígvél og þessa fínu gullskó (er soddan prinsessa sko) og ipod nano, sem ég er hálf feimin við enn þá (alltaf einhver "hræðsla" í mér þegar kemur að því að læra á ný tæki). Ekki má gleyma öllu Sex and the City collectioninu, en ég ELSKA þessa þætti!!! Örvar hefur aldrei fylgst með þessum þáttum svo nú munum við setjast niður og glápa saman vííjjj!!! Ég var að sjálfsögðu alveg yfir mig ánægð með þetta allt saman og mér til enn meiri ánægju þá passaði þetta allt saman, meira að segja skórnir :)  Hann keypti nú eitthvað handa sjálfum sér, var hálf hrædd um að hann myndi gleyma því he he, keypti sér nýja skó og soddans sem er nú gott þar sem hann fær enga skó hér á landi.... það er svona að vera með skíðalappir :)

Það hefur varla farið fram hjá þeim sem fylgjast með þessari síðu að hann náði sér í x-box 360 tölvuna svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvað hann er að gera núna.... Nú er verið að prófa einhverja nýja leiki, einhverja þroskandi stríðs- og bílaleiki, dáðst að grafíkinni og soddans he he....

Þetta er búin að vera mjög ljúf helgi, við búin að hafa það gott, borða góðan mat, liggja í leti og njóta þess að vera saman á ný. Tvær vikur geta verið mjög lengi að líða get ég sagt ykkur!!!

Á morgun er próf hjá krökkunum sem ég var að kenna í verklegri dýrafræði í líffræðinni. He he man þegar ég var að taka þetta próf fyrir 6 árum síðan, alveg að deyja úr stressi..... Fannst ég ekki kunna neitt eða geta neitt, viss um að ég myndi falla osvfrv. Ég kunni nú og gat samt ýmislegt og féll ekki... en ég veit hvernig þeim líður greyjunum. Ég á að sitja yfir þeim og taka tímann og segja þeim hvenær þau eiga að skipta um stöð (stöðvapróf sko). Verð eflaust spurð einhverra spurninga, en má að sjálfsögðu ekki segja neitt he he. Verð bara að blikka þau hughreystandi (verð að æfa mig í því kannski) og klappa þeim á öxlina eða eitthvað.
Annars er ég bara að skrifa ritgerðina mína, gengur ágætlega þó ég hafi lítið gert í henni um helgina (svei, personal reasons), en hún verður sko ógeðslega flott á endanum!! Læt hana ekki frá mér öðruvísi sko, enda næstum þriggja ára vinna (með hléum) að baki þegar ég útskrifast.


En já allt gott að frétta og ég UUUber kát að vera búin að endurheimta hinn helminginn. Nú nenni ég að fara að elda aftur ;)

Best að fara að sofa og mæta hress í prófyfirsetu á morgun múhahaha!!
Kveð að sinni.... ta ta




1.12.05
Dagur 14 af 15

Nú er Örvar búinn að vera í burtu í tvær vikur! Finnst þetta alveg vera eins og heill mánuður.... Hann kemur heim að morgni 16 dags og hlakka ég mikið til :)

Vordís systir mín kom í gærkvöldi og ætlar að gista hjá mér í tvær nætur. Hún er hérna til að leika sér... alltaf gaman að koma í bæinn og eyða smá pening í föt og soddans. Hún er búin að vera í hálfgerðu Veronica Mars maraþoni síðan hún kom, situr límd við skjáinn meðan ég sit límd við tölvuna.

Það gengur allt ágætlega hjá mér. Búin að klára einn kafla og var í gær að dunda mér að setja inn myndir. Verst að myndirnar eru svo stórar, held að þessar 10 bls séu alveg 12 MB he he. Veit það er hægt að minnka myndirnar á einhvern einfaldan hátt, bara örugglega of einfalt til að ég fatti það he he, ætla að bíða þar til tölvunördinn kemur heim og láta hann sýna mér.

Skellti mér í ræktina í gær með Stellu og nú er ég alveg að farast úr harðsperrum... afhverju er maður að gera sér þetta? Algjörir snillingar, fórum í ræktina í fyrradag líka og settumst svo niður með ís og súkkulaði.... Ekki skrítið þó að kílóin sitji sem fastast :)

Jæja, best að halda áfram með skriftir... það er svo gaman :)
Kveðja Berglind




30.11.05
New York day 13 of 15

Jaeja, tha er thad fyrsti midvikudagur eftir thanksgiving og thad thydir bara eitt herna i New York. The Rockefellar Center Christmas Tree party. Byrjar i kvold og thad verda skemmtiatridi og fraegir tonlistarmenn tharna. Aetla ad skella mer a thad i kvold. Buinn ad hlada cameruna og tek myndir og video, aetla ad maeta snemma svo eg fai gott staedi.

Posted at 16:45 by Örvar
Fjöldi skoðana (1)  




29.11.05
Back in da city

Tha er madur kominn aftur nidri borgina eftir ad hafa att fantagodar stundir upstate med fjolskyldu og vinum sem madur hefur ekki sed i 6-10 ar.

Vid tokum flugvelina fra Syracuse til New York um 5 leytid i gaer og lenntum i New York um 6 leytid. Thegar heim var komid gekk eg fra toskunum og for nidur a Times Square ad skoda mig um. Gekk tharna um 10-15 straeti eda svo og fekk mer ad borda.

I dag for eg svo i The Museum of Natural History og thar var margt skemmtilegt ad sja, kom svo vid i Circuit City og fann restina af thvi sem mig vantadi fyrir 360 velina mina og helt gladur af stad heim.

Thott ad thad se gaman ad vera i New York er mikill soknudur heim til Berglindar minnar, svona gerir astin manni erfitt fyrir.

Posted at 20:01 by Örvar
Fjöldi skoðana (1)  




Next Page